Fjarþjálfun
Langar þig að ná árangri í ræktinni?
Hvort sem þú vilt létta þig, styrkja þig, þyngja þig, bæta á þig vöðvamassa, bæta þol, auka sprengikraft eða bara stinna þig og tóna þá þarftu prógram og markmið sem hentar ÞÉR!
Ekki fara í ræktina og gera bara eitthvað!
Eftirfarandi er innifalið í fjarþjálfun:
• Mælingar fyrir og eftir mánuðinn. Ummálsmælingar og klípu fitumæling.
• Lyftingaprógram sem hentar þínum markmiðum. Ég hitti þig og kenni þér hvernig á að gera æfingarnar rétt.
• Brennsluprógram sem hentar þér til þess að koma þér í draumaformið á sem skemmstum tíma.
• Næringaraðhald, matarprógröm og upplýsingar um hvaða fæðubótarefni henta þér og þínum líkama.
• Þú færð þitt eintak af framtíðar einkaþjálfaraforriti með video af öllum æfingum sem eru í þínu prógrammi, ásamt upplýsingum um fjölda setta, endurtekningafjölda o.s.frv.
• Við setjum okkur markmið hvað við viljum gera og ég útbý lyftinga, brennslu og næringarprógram út frá því.
• Ég hvet þig til þess að vera dugleg(ur) að senda mér e-mail með spurningum um mataræðið og æfingarnar og ég svara þér um leið.
Þú getur æft í hvaða líkamsræktarstöð sem er!!




