Einkaþjálfaraforritið
Einkaþjálfaraforritið Sideline Sports

Margir af fremstu þjálfurum heims nota Sideline í þjálfun sinni. Forritið hefur mikið verið notað í þjálfun knattspyrnumanna, körfubolta og handbolta svo eitthvað sé nefnt.. Nú er loksins komin útgáfa fyrir einkaþjálfara sérsniðin að líkamsrækt.

Þú færð þitt eintak af forritinu og þegar þú opnar það kemur þessi gluggi hér fyrir ofan. Þú setur inn notendanafnið og lykilorðið sem ég gef þér og þá opnast reikningurinn þinn.

Þessi gluggi hér opnast siðan þegar þú ert búinn að logga þig inn og eina sem þú notar er Calendar hnappurinn.

Svona lítur glugginn út þegar þú ert búin að opna dagatal mánaðarins. Hérna sérðu hvaða daga þú átt að æfa. Ef að þú klikkar t.d. á hnappinn ‘lyftingar’ þann 3.mars þá opnast sá dagur og þú sérð hvernig æfing dagsins lítur út.

Svona lítur æfing dagsins út. Hérna sést hvernig æfingin er uppbyggð, æfingaröð, settafjöldi, endurtekningafjöldi og hvíldartími mili setta kemur allt fram á þessu blaði. T.d. í efstu æfingunni Sitjandi Fótaréttur þá er endurtekningafjöldinn 15 og hvíldartími milli setta 1,5 mínúta. Þú prentar þetta blað út og tekur með þér í ræktina og fyllir inn þyngdirnar sem þú notaðir í æfingunum.

Þegar þú ert búin á æfingunni þá geturðu sett inn þyngdirnar í forritið. Þá færast þyngdirnar yfir í forritið mitt ég get fylgst með hvaða þyngdir þú ert að taka. Með þessu er auðvelt og þæginlegt að fylgjast með hvað þú styrkist með tímanum.

Ef þú ert ekki alveg klár á hvaða æfingu við erum að tala um þá hægrismellirðu á æfinguna og gerir “View Online Content” og þá kemur video af æfingunni.
Einfalt og þægilegt í notkun!




